|
|
07.04.2008 09:22:40 / hafrung
Jæja halló! Ég trúi ekki að ég eigi afmæli í dag, hvað verður eiginlega um allan þennan tíma sem flýgur hjá?? en allavega þá verð ég 27 ára kl: 16.12 í dag  vá 27, varð ég ekki 20 ára í fyrra eða hvað!!!  Ég er búin að fara í göngutúrinn minn í dag en fer ekki í vinnunna  því hann Gummi Gísli er með barkabólgu svo við verðum bara heima og reynum að hafa það gott  Hann er svo slappur greyið, er búinn að vera með hita síðan á föstudag og hóstar og hóstar og sefur því ekki vel  mér finnst alltaf svo erfitt þegar þau verða svona veik. Þessi barkabólga er líka svo ömurleg, þetta er í 3 skiptið sem hann fær þetta og hann hóstar svo mikið að hann nær varla andanum, var orðinn hálfblár í framan á laugardagsnóttina  maður þorði varla að loka augunum...en þessi flensutími fer vonandi að verða búinn í ár  Annars er ekki mikið að blogga um þessa dagana, (frekar en vanalega hjá mér  ) lífið gengur bara sinn vanagang, sem er nú bara ágætt  vorið er alveg að skella á, það er 5 stiga hiti hér í dag og það var æðislegt að fara út að labba í morgun, vorlykt í lofti  svona moldarlykt  það er sko alveg kominn tími á það Það styttist líka í að það verður hægt að komast í sveitina, krakkarnir spyrja svona annan hvern dag hvað sé langt þangað til við förum þangað  Munaðarnes býr yfir miklu aðdráttarafli, hugurinn leitar þangað hvern einasta dag og horfir yfir landslagið og andar að sér loftinu sem ilmar af hafi og mold og óskar þess að vera þarna í raun og veru og þurfa aldrei að fara  en á meðan ég bíð hlakka ég bara ofsalega mikið til að komast heim og safna smá orku þangað til að ég þarf að fara til baka aftur  Emilía Rós er hress og ekkert hrjáir þá stúlkuhnátu  hún fór í sitt fyrsta partý á laugardagskvöldið  fékk boðsmiða um að henni væri boðið í prinsessupartý og að það væri æskilegt að hún myndi mæta í prinsessubúning. Þetta var hjá bekkjarsystur hennar sem heitir Kristjana og það var ekki lítill spenningur á heimilinu þann daginn  hún skipti 4 sinnum um föt en endaði svo á að fara í þeim sem hún mátaði fyrst  það var rosalega gaman hjá þeim, þær bökuðu svo pitsu og hún kom heim 19.30 alveg í sæluvímu Henni hlakkaði líka mikið til í morgun að fara til ömmu sinnar eftir skóla í dag því að amman sagði henni í gær að hún ætlaði að vera búin að búa til fyrir hana kusubúðing (ábrystir) sem er bara það besta sem hún fær  . Hún nýtur sín mjög vel hjá ömmu sinni og afa  en ætli maður þurfi ekki að fara að baka eitthvað  ég bakaði smá í gær en ætla að gera aðeins meira fyrst ég er heima í dag... allir velkomnir í kaffi og kökur í kvöld sjáumst kveðja Hafrún (p.s. 21 kíló farið)
»
18.02.2008 20:43:01 / hafrung
Í dag er 18. Febrúar
Í dag eru 4 mánuðir síðan Sólveig Stefanía fæddist.
Í dag eru 4 mánuðir síðan Sæi bróðir varð 46 ára.
Í dag eru 4 mánuðir síðan ég ákvað að ég vildi ekki vera
feitabolla lengur.
Í dag eru 4 mánuðir síðan ég drakk kók síðast,
Í dag eru 4 mánuðir síðan ég borðaði nammi síðast,
Í dag er ég 16 kílóum léttari en ég var 18. Október
Það eru 32 smjörlíkisstykki!!! Sem mig langar ekki mikið til
að burðast með í bakpoka allan daginn
Á hverjum degi fer ég í göngutúr klukkan 6.10 á morgnanna,
ég fer í jóga á mánudögum og miðvikudögum og ég borða hollan mat. Það er víst
það eina sem dugar ef maður vill ekki vera feitabolla og þá skal ég bara gjöra
svo vel að halda áfram því ég er hætt að vera feitabolla og hananú!
Það verður svo ljúft að fara að kaupa sér föt í vor, ætla
ekkert að kaupa mér fyrr en ég á afmæli, gref bara upp gömul föt sem hafa
fengið að vera aftast í skápnum í langan tíma
Annars gengur lífið sinn vanagang hér í Grundó
Emilíu Rós gengur mjög vel í skólanum, hún er komin upp í
annan bekk í lestri og hún bara blómstrar stelpan:I) hún æfir frjálsar íþróttir
tvisvar í viku og finnst það æðislegt, gott fyrir hana að fá útrás fyrir alla
þessa orku sem hún hefur Hún er búin að missa tvær tennur og er búin að
stækka heilan helling síðustu mánuði ( er samt en minnst í bekknumJ) annað hvort það eða
fötin hafa minnkað allsvakalega í þurrkaranum
Núna fer hún alltaf til Bryndísar frænku sinnar eftir skóla
því mamma og pabbi eru í afslöppun á Kanarý, ekki veitir af eftir að hafa
fiðrildið hana Emilíu hjá sér alla daga eftir skóla Henni finnst nú ekki
verra að fá að flögra um í kringum þær mæðgur Bryndísi og Sólveigu litlu
Gummi Gísli er sami gaurinn og vanalega, hann og Einar halda
til í sínum turtles, spiderman- og sjóræningjaheimi þegar þeir leika
saman. Annars nægir honum 1 bíll eða svo
þá er hann góður að leika sér allan daginn
Gugga systir ætlar að koma yfir helgina og erum við systur
að hugsa um að hafa systrakvöld hjá Unni eitthvert kvöldiðJ horfa á gömul ´80
myndbönd og drekka appletini það getur ekki klikkað
Get varla beðið eftir vorinu... febrúar hefur reyndar flogið
áfram en mars er eftir og mars er leiðilegasti og lengsti mánuður ársins... sem
betur fer eru páskarnir í mars núna og styttir hann töluvert hlakkar svo til að komast heim í sveitina og
getað andað aftur....bara rúmir 3 mánuðir þangað til bless verið hress og ekkert stress kv. Hafrún minnkandi fitubolla
»
26.12.2007 02:12:08 / hafrung
Jæja gleðileg jól og takk fyrir okkur Þetta hefur verið meiri letidagurinn. Krakkarnir hafa leikið sér í allan dag með allt góssið sem kom upp úr pakkaflóðinu í gær, Sólberg missti sig í „top gear“ dvd (360 mínútur af efni um bíla) og ég búin með báðar bækurnar sem ég fékk í jólagjöf. Þá er spurning hvað maður gerir við afganginn af jólafríinu? Ég fékk að sjálfsögðu „ þar sem vegurinn endar“ eftir Hrafn Jökulsson og Harðskafa eftir Arnald. Báðar snilldarbækur. Það var reyndar svolítið skrítið að lesa bókina hans Hrafns, skrítið en gaman, að maður sem ég þekki ekki neitt skuli hafa þekkt ömmu mína og móðurfólkið mitt svona vel og skrifa svona fallega og skemmtilega um þau. Ég bæði hló og grét. Það var líka vissulega skrítið að maður sem eyddi þarna nokkrum sumrum skuli minna mann á hversu mikil forréttindi það voru að alast upp í þessari afskekktu sveit og hve mikils virði það er í dag að hafa náð í brotabrot af þessum gamla tíma með öllu þessu góða fólki. Manni langar mest að gleyma öllum ástæðunum fyrir því að ekki var lengur hægt að búa á Munaðarnesi og flytja með allt sitt á besta stað í heimi og lifa hamingjusöm til æviloka, ef aðeins lífið væri svo einfalt.... Það er líka gott að búa í Grundarfirði, hér hefur snjóað í tvo daga, loksins allt á kafi í snjó. Eftir pakkana í gær löbbuðum við til mömmu, pabba og Guggu, krakkarnir fengu reyndar far á snjóþotum, þar var drukkið kaffi og spjallað. Jólagjafir skoðaðar, Gugga systir fékk ekkert nema rollur og afar sátt við það, pabbi var kominn á kaf í bókastaflann sinn og mamma fékk sitt lítið af hvoru jafn ánægð með allt eins og vanalega Ekki slæmt að labba heim á leið með fullt tunglið og stjörnurnar fyrir ofan sig Á morgun er jólaboð hjá mömmu og pabba, við systkinin erum öll í Grundarfirði þessi jólin, þannig að það verður margt um manninn í litla, hlýlega húsinu þeirra. Við erum orðin 29 í þessari fjölskyldu og því ekkert grín að koma þessu öllu fyrir. En þröngt mega sáttir sitja Þegar enn var búið í tveim húsum á Munaðarnesi komu amma og afi alltaf til okkar á jóladag í jólakaffi og við fórum svo til þeirra í mat, oftast á þrettándanum. Við vorum kannski ekki mjög mörg en það voru allavega amma og afi, Indi, pabbi, mamma, Gugga, Bryndís og ég. Þau voru með pínulitla borðið sitt sem ég er hef verið með síðustu ár og aldrei tók ég eftir hve lítið það var, kannski að því ég var lítil sjálf. En við sátum átta við þetta borð með allan veislumatinn á því og í dag skil ég það ekki því við erum 4 hræður í heimili hér og borðið er einfaldlega of lítið dagsdaglega hvað þá ef ég er með eitthvern spes veislumat á því! Nú er borðið komið í smá pásu þar sem við fengum lánað stærra borð. En ég sakna litla borðsins sem amma gat raðað á dýrindisjólamat og engum fannst of lítið, fyrr en árið 2007. Ég sakna ömmu og afa. og ég sakna jólanna á afskekktum bæ út við sæ.
Gleðilega jólahátíð og verið góð við hvort annað Kv. Hafrún
»
28.09.2007 19:17:54 / hafrung
Helló! Já ég hef ekki verið dugleg hér voðalega löt eitthvað, kannski er bara ekkert um að vera sem ég get skrifað um...... En það er komin föstudagur sem er alltaf ægilega ljúft. Vikurnar hreinlega fljúgja áfram án þess að maður ráði við eitt né neitt. Maður verður dauður áður en maður veit af! Lífið er eitt púsluspil þessa daganna, Emilía er í skólanum til 12.30 en við erum að vinna heilan vinnudag. Ég er að vinna til 16 en Sólberg kemur seint og um síðir, sjáum ekki mikið af honum greyinu. Þannig að það lendir á mínum ástkæru fjölskyldumeðlimum að hugsa um stelpuna þangað til ég er búin að vinna. Það er alveg ómetanlegt að eiga svona góða að og ég get seint fullþakkað ykkur alla hjálpina. maður er bara alltaf með samviskubit Eðlilega væri best að hún væri í heilsdagsskólanum en þessir 3 klukkutímar á dag í gæslu kosta 26000 krónur á mánuði hér í bæ það er by the way svipað og við borgum fyrir 8 tíma vistun á leiksskólanum fyrir Gumma. Skil ekki svona vitleysu, ég fór að kanna málið og komst að því að Grundarfjörður er með langhæsta gjaldið yfir landið í þessum málum og einnig með dýrasta hádegismatinn. Það munar til dæmis 19 000 krónum hér og í Sandgerði en þar kostar aðeins 7000 krónur að hafa barn í 4 tíma vistun eftir skóla með mat Samt er Grundarfjörður með sérstaka fjölskyldustefna sem maður verður því miður ekki mikið var við! Ég ákvað að senda fræðslunefnd/bæjarstjórninni bréf og benti þeim á þetta og vonandi verður gert eitthvað í þessu. En þangað til verðum við að halda áfram að níðast á vinum og ættingjum Hún fer nú oftast til mömmu og pabba og hafa þau reynst okkur ótrúlega vel og finnst þetta nú lítið mál en auðvitað vill maður ekki vera binda þau yfir barnabörnunum þegar þau eru loksins laus við börnin sín og rollurnar Annars hafa allir hérna leyft henni að koma til sín eftir skóla og er aldrei neitt mál með það Takk mamma og pabbi, Bryndís, Biggi, Trish, Unnur og Brynja Sif fyrir hjálpina Núna hefur einnig verið danskennsla eftir skóla, þessa viku og næstu, þannig að það þarf að redda henni þangað líka og sækja hana.... arg!!!! það er bara basl að reyna að stjórna þessu öllu úr vinnunni En þetta hefst allt saman Hún er orðin vel læs stelpan og henni finnst æðislegt í skólanum, mánudagarnir eru reyndar erfiðir fyrir hana því þá er dótadagur í leikskólanum og henni finnst ekki sanngjarnt að Gummi fái að taka dót en ekki hún Þetta er vissulega soldið stökk fyrir þessa krakka, allt í einu orðin stór og þarf að passa sig soldið sjálf... hún er ansi gjörn á að gleyma hlutum upp í skóla eins og skólatösku eða úlpu!! en það er örugglega mömmunni að kenna því hún hefur unnið á leikskólanum hennar síðan hún var 3 ára og passað upp allt og fylgst með öllu fyrir hana og er þetta því einnig viss aðlögun fyrir kellinguna að geta ekki verið með nefið niðri öllum hennar málum En auðvitað er þetta bara hið besta mál, hún lærir að treysta á sig og stendur sig mjög vel. Gumma finnst þetta líka allt svolítið skrítið allt saman. Kennararnir hans á leikskólanum eru sammála um að hann sé í smá sorg, stóra systir sem passaði svo vel upp á hann og hefur verið með honum frá byrjun er allt í einu farin eitthvert annað. Hann er pínu vængbrotinn og veit ekki alveg hvernig hann á að haga sér. En þetta kemur allt saman og hann er nú líka búinn að fá Einar frænda sinn á deildina og það er rosalega gott fyrir þá frændur að vera þarna saman. Þetta er allt af hinu góða og allir eru að aðlagast breyttum aðstæðum Það er búið að vera brjálað veður hérna í Grundarfirði þessa vikuna, sunnan rok og rigning, bara þetta venjulega Grundarfjarðarveður eins og það er oft kallað. En jæja þetta er komið gott í bili... líður mun betur að geta pústað pínulítið, aumingja þið örfáu sem lesa þetta  kveðja úr fjölskyldubænum Grundarfirði Hafrún
»
18.08.2007 08:30:14 / hafrung
Halló halló! Jæja þá er sumarfríið búið og lífið að komastí fastar skorður eftir ys og þys sumarsins sem er alltaf ágætt Sumarfríið var æðislegt, við byrjuðum á því að fara í sumarbústað í viku í Brekkuskógi, þar fór hitastigið varla niður fyrir 25 gráðurnar alla dagana, það var frábær vika Við fórum svo til Bolungarvíkur, þaðan á Leiru í nokkra daga og enduðum svo í sveitarsælunni á Munaðarnesi vorum kannski tvær nætur í Grundarfirði allt fríið, þá komum við um kvöld og vorum farin aftur um morgun. Gott að geta breytt algjörlega um umhverfi og hlaðið batteríin fyrir veturinn Krakkarnir eru svo brúnir og sætir eftir sumarið og Gummi orðinn alveg hvíthærður, enda voru þau úti alla daga. Lækurinn og fjaran í sveitinni eru langvinsælasti leikstaðurinn þeirra þar voru þau frá morgni til kvölds alveg eins og ég þegar ég var lítil Síðustu dagana var Gummi reyndar farinn að spyrja hvenær við færum aftur í Grundarfjörð, en um leið og við vorum komin þá fór hann að spyrja hvenær við færum aftur í sveitina En nú er vinnan aftur byrjuð sem er reyndar bara fínt, núna er ég að vinna frá 7.50 til 15.40. sem er mikill munur frá því að vera 9-17. Emilía er orðin mjög spennt fyrir skólanum sem er að byrja í næstu viku. Við fórum í vikunni og keyptum skóladótið og eigum núna bara eftir að kaupa skólatöskuna, en við reddum því á mánudaginn hún er reyndar soldið kvíðin líka, besta vinkona hennar er nefnilega árinu yngri og þær geta því ekki verið mikið saman í vetur en þær eru eins og samlokur. Þær skiptast á að fara heim með hvor annarri alla vikuna Svo verður fjör hjá okkur í vetur því að Bryndís og fjölskylda ætlar að búa hérna hjá okkur þangað til húsið þeirra hérna verður tilbúið Það er bara ekkert leiguhúsnæði í boði hérna í Grundó svo það verður stuð hérna Gummi ætlar að lána þeim herbergið sitt og hann og Einar ætla að vera saman í gestaherberginu og honum er farið að hlakka mikið til að fá þá bræður til sín Þeir Einar eru svo góðir vinir þurfa ekki annað en að horfa á hvor annan þá eru þeir farnir að hlæja Jæja það er svo sem ekki mikið að frétta meira, Sólberg er á pungaprófsnámskeiði hérna í framhaldsskólanum og ég er að mana mig upp í að fara að baka eitthvað, nenni eiginlega aldrei að baka lengur, ég sem var alltaf bakandi hérna einu sinni aldurinn farinn að segja til sín bæjó Hafrún
»
28.06.2007 21:53:45 / hafrung
Hallú!
Á morgun er síðasti dagur fyrir sumarfrí oh hvað það verður
ljúft að fara í 5 vikna frí.... allt sem við ætlum að gera úff get
ekki beðið
Án þess að rekja dagana frá A-Ö þá byrjum við á því að fara í
bæinn um helgina til að hitta þar Maríu og co sem eru að koma frá
Danmörku í smá tíma, í næstu viku förum við svo í sumarbústað í
viku, Bryndís og fjölskylda verða þar í næsta bústað við okkur svo
það verður örugglega æðislegt. Svo eftir það er það líklega
Bolungarvík, Leira og endað á Munaðarnesinu fagra Það verður svo
gott að skipta um umhverfi í smátíma. Þótt það sé æðislega gaman í
vinnunni þá er alltaf gott að komast í frí og slappa af
Ég er búin að vera svo mikið úti í vinnunni síðustu daga því
veðrið er búið að vera svo gott að ég var orðin eldrauð, fattaði
ekki að ég þyrfti kannski að bera á mig sólavörn, maka á krakkana
eins og ég get en var ekki að kveikja að kannski gæti ég brunnið
líka Æðislegt að geta verið svona úti, krakkarnir orðnir brúnir
og sætir, hárið á Gumma orðið hvítt og Emilía komið með svona flott
gleraugnafar
Emilía er líka búin að vera á sundnámskeiði síðustu tvær
vikurnar, orðin nokkuð klár stelpan. Það var lokadagurinn í dag og
Sólberg fór að horfa á og þetta var bara rosalega flott hjá þeim.
Hún tilkynnti mér núna að nú kynni hún að synda án kútana og ég
gæti bara gefið eitthverjum litlum krakka kútana sína
Við systur fórum í verslunarleiðangur í bæinn síðustu helgi og
keyptum tvær kojur heim á Munaðarnes. Neðri kojan er semsagt
tvíbreið, svona til að nýta herbergin sem best. Svo voru einnig
keyptar 10 sængur og 10 koddar og myrkragardínur í svefnherbergin
svo þetta verður allt annað líf að koma þarna heim Gugga og Unnur
voru einmitt heima núna og voru rosa duglegar að taka til úti og
eitthvað inni líka, það er samt nóg eftir að gera enn
Í gær fórum við vinnan saman út að borða hérna niður á hótel,
svona smá slútt fyrir sumarið. Það var bara mjög fínt, fengum okkur
þriggja rétta máltíð og þetta var bara mjög gott Alltaf gaman að
fara út að borða
Við fórum einmitt heim helgina fyrir tveimur vikum Það var
æðislegt, endurnærðist algjörlega á þessum tveimur dögum. Það var
æðilegt veður og við vorum bara úti allan tímann. Krakkarnir nutu
sín ekkert smá þarna niður í fjöru
Jæja þetta er komið gott í bili, hafið það gott í sumar... ég
ætla alla vega að skemmta mér vel
kveðja Hafrún í sumarskapi
»
11.06.2007 19:12:14 / hafrung
Hellú
Ég komst ekki heim um hvítasunnuna vegna veðurs það er nú
bara næstum því fyndið að komast ekki ferða sinna í lok maí vegna
ófærðar og snjóbyls En svona er að búa á Íslandi, maður veit víst
aldrei hvað maður á von á hér
En það þýðir ekki að væla yfir því, maður gerði víst lítið annað
ef maður ætlaði að láta veðrið ráða því hvernig skapi maður er í
hverju sinni
En allavega við erum að velta því fyrir okkur að skella okkur
heim í sveitina núna um helgina og krakkarnir farnir að telja niður
(ég líka) 
Annars er nóg búið að vera um vera hjá okkur hérna í Grundó, Við
skelltum okkur á ball um sjómannadagshelgina, það var rosa
stuð.
Bryndís og Bjarni og co eru búin að kaupa lóð og grunn hér í bæ
og stefna á að byrja að byggja sér hús í haust það verður sko
æðislegt að fá þau hingað til sín
Svo var mikið húllúmhæ hjá pabba og mömmu um helgina en pabbi
átti afmæli á laugardaginn og mamma á afmæli á morgun svo það var
haldin mikil grillveisla í tilefni þess. Þar mætti öll fjölskyldan
nema að það vantaði Sæa sem var á sjó og Eyþór sem er í útlandinu
Það var sko mikið stuð
Svo er ég bara farin að bíða eftir að komsat í sumarfrí!!!!!!!!
aðeins þessi vinnuvika eftir og svo tvær í viðbót er þá komin í 5
vikna frí það verður nú ljúft. Það verður líka nóg að gera
þessar 5 vikur, við ætlum í sumarbústað í viku, svo ætlum við að
reyna að fara í smá útilegu, komast á Leiru og í Bolungarvík og svo
auðvitað Munaðarnes Get ekki beðið eftir þessu öllu saman, fyrsta
sumarið sem við fáum sumarfrí saman fjölskyldan
En jæja hann Guðmundur Gísli sonur minn er að sofna hérna við
hliðina á mér, best að koma krökkunum í rúmið
sumarkveðja Hafrún
»
24.05.2007 22:46:01 / hafrung
Halló!
Á morgun fer ég heim vonandi þar er að segja ef að veðrið
getur haldið sér góðu þangað til að við er komin á áfangastað...
Núna er reyndar ófært heim og bylur eins og er en ég er nokkuð
bjartsýn á að á þessum tíma annað kvöld verðum við komin heim á
Munaðarnesið okkar og ég get ekki beðið.
Það á að moka strax í fyrramálið og svo á að fara að rigna svo
það verður vonandi allur snjór farinn þegar við leggjum af stað en
við förum ekkert fyrr en eftir vinnu á morgun eða eftir 17.
Ég er bara orðin svo orkulaus og þreytt eitthvað og ég verð bara
að komast heim og hlaða batteríin og það er aðeins hægt á
Munaðarnesi. Það er fátt eins endurnærandi en að sitja á klettunum
heima og horfa út á opið hafið. Manni finnst maður næstum geta
allt Ótrúlegt hvað staðurinn hefur sterkt tak á manni. Á þessum
tíma, á vorin, þegar næstum ár er liðið síðan maður yfirgaf
Munaðarnes meðan það lagðist í vetrardvala, þá er maður bara búin á
því og maður skilur ekkert í því hvað maður er alltaf þreyttur og
pirraður. En það er eins og þessi doði hverfi bara um leið og maður
fer fyrir hryggina og sér HEIM.
Jæja nóg um það, ég hlakka bara svo til.....
Það er annars búið að vera nóg um að vera, Guðmundur Gísli varð
4 ára á mánudaginn og hefur stækkað alveg helling síðan þegar
hann vaknaði á afmælisdaginn kom hann fram og tilkynnti mér að hann
væri milkið stærri í dag en í gær SVo segir hann alltaf að hann
sé næstum því stærri en Emilía Rós, systurinni til mikils ama Það
var svo veisla fyrir fjölskylduna á sunnudeginum og fyrir árgangin
hans í leikskólanum á mánudaginn eftir leikskóla, það var rosa
fjör
Bryndís og strákarnir voru líka hjá okkur yfir helgina og
krakkarnir skemmtu sér mjög vel saman
Indi heitin á afmæli á morgun. Hefði orðið 98 ára gamall, svo á
afi afmæli 27, hann hefði orðið 95 ára. Amma dó fyrir ári í dag,
trúi varla að það sé ár liðið. Mér finnst svo stutt síðan við
kvöddum hana. Tíminn líður ansi hratt hérna hjá manni, stundum
finnst manni maður ekki hafa tiíma til að líta upp!
Það verður gott að komast heim og slaka á í nokkra daga Leika
í fjörunni og labba út í Land, það bara verður að hætta að
snjóa
Þetta er nú orðið meira vælubloggið Stundum má maður vorkenna
sér smá en bara ekki of lengi í einu og þetta er orðið gott hjá
mér í bili
Kveðja Hafrún með heimþrá
»
10.05.2007 20:58:10 / hafrung
Halló halló!
Jæja nú sit ég og horfi alein á júróvision held ég hafi aldrei
gert það áður, aumingja ég
Emilía og Gummi horfðu nú reyndar á fyrri helminginn með mér og
voru bara nokkuð spennt yfir þessu, Emilíu fannst nokkuð merkilegt
hvað allir voru fínir og ákvað það að ef maður væri ekki fínn þá
bara fengi maður ekki að syngja í Júróvision Hún söng svo
hástöfum með Eiríki Hauks og fannst hann bara nokkuð fínn líka þótt
að hann hafi verið með stelpuhár
Þetta er stuð, bara fyndið að horfa á þessi misvel heppnuðu
atriði Man hvað maður lifði fyrir þetta þegar maður var lítill.
Tókum allt upp á video og kassettu úr útvarpinu. Hlustaði svo á
kassettuna í fjárhúsunum í sauðburði og horfði aftur og aftur á
spóluna Kunni þetta aftur á bak og áfram
Ég væri nú líka alveg til í að vera komin heim á Munaðarnes og
horfa á þetta þar, það var nú ekki lítil stemning þegar við vorum
að undirbúa kvöldið. Allskonar ostar og kex, nammi, snakk, það
gleymdist alltaf að kaupa ídýfu svo Bryndís bjó alltaf til
heimatilbúna ídýfu úr því hráefni sem var til hverju sinni og tókst
alltaf furðu vel hjá henni
Í dag fórum við svo í foreldraviðtal hjá henni Ingu Rut
deildarstjóranum okkar Gumma Það gekk eins og í sögu. Hann er
bara hinn fínasti strákur, klár og skemmtilegur eins og við vissum
auðvitað Hann er að fara flytjast yfir á Drekadeildina núna um
mánaðarmótin, hann er alltaf part úr degi þar núna og gengur bara
rosalega vel. Svo er skólastelpan hún Emilía Rós á fullu í
vorskólanum núna, síðasti dagurinn hjá henni á morgun. Hún er búin
að fara í sundtíma, handmennt, stærðfræði og flest það sem 1.bekkur
er að læra Hún er líka búin að stækka ekkert smá mikið þessa
vikuna er bara orðin hálffullorðin. Hún veit allt og getur
allt
Þetta er ekkert smá skrítið, tíminn eiginlega flýgur bara
Veit ekkert hvað ég get skrifað meira, er voðalega andlaus
eitthvað
Ég er eitthvað að rembast við að vera dugleg þessa dagana og
hjóla alltaf í sund fyrir vinnu og syndi í hálftíma. Búin að gera
þetta í tvær vikur núna og er ekki frá því að maður sé nú aðeins
sprækari Aðeins svona ferskari í vinnunni
en jæja komin tími til að kjósa í júróvision, veit ekkert hvað
ég á kjósa, ekkert frekar en ég veit hvað ég á að kjósa á
laugardaginn
kv. Hafrún
»
27.04.2007 20:09:17 / hafrung
Halló halló!
Það er eins gott að fara að skrifa eitthvað hérna áður en ég
verð skömmuð meira gerði mér greinilega ekki grein fyrir allri
pressunni við að halda úti svona bloggi ekki alveg að standa mig
hérna!
En jæja við erum komin heim í útlandinu eftir alveg frábæra ferð
til Köben þetta var ekkert smá gaman, fyrstu dagarnir fóru í að
skoða leikskóla og vöggustofur. Byrjuðum á því að skoða leikskóla
og vöggustofu í Kristjaníu, það var virkilega spes staður Það var
ekki einu sinni girðing á leikskólalóðinni heldur var börnunum
treyst til þess að halda sig á lóðinni það voru bara karlmenn sem
unnu þar og þeir mundu bara tvisvar eftir því að börn höfðu strokið
og í annað skiptið föttuðu þeir það ekki fyrr en tveim tímum seinna
en þá var barnið búið að labba heim til sín Svo sátu þeir úti og
reyktu milli þess að þeir ýttu börnunum í rólunum mjög
heimilislegt!
Skoðuðum líka leikskóla með sólarhringsopnun, þeim leikskóla er
aldrei lokað og er aðallega nýttur af fólki í vaktavinnu, börnin
sváfu þar í kojum á nóttinni og þar var ekkert útisvæði.
Starfsfólkið hjólaði hins vegar með 20 börn á dag í leikgarð það
skammt frá þar sem þau eyddu deginum Í flestum þessum leikskólum
var ekki boðið upp á mat í hádeginu heldur þurftu börnin að koma
með nesti fyrir daginn. Þetta var mjög gaman og skemmtilegt að bera
þetta saman við hvernig þetta er hjá okkur á Íslandi. Þarna úti er
eiginlega ekkert dagskipulag heldur fá börnin eigilega alveg að
ráða deginum sjálf sem er ekki hérna hjá okkur. Hérna er dagurinn
mjög skipulagður og það var gott að sjá að maður þarf ekki endilega
að gera allt eftir bókinni
En jæja nóg um leikskóla, kannski finnst ekki öllum þetta jafn
spennandi og mér
Við vorum búnar með allt prógrammið eftir hádegi á föstudeginum
og gátum við þá einbeitt okkur af því að versla og skoða Köben,
Sólberg kom líka þá. Laugardagurinn fór aðallega í tívolí og það
var rosalega gaman, ótrúlegt en satt þá fór ég í fullt af tækjum,
mörg ansi svakaleg Þar hittum við líka Maríu og Reyni og Margréti
Emblu, Það var æðislegt að hitta þau aftur, langt síðan við sáum
þau síðast og litla stelpan hún Margrét Embla var sko alls ekkert
lítil lengur
Á sunnudaginn fórum við allar og Sólberg í leiðsögn um gömlu
Köben og skoðuðum Íslendingaslóðir, það var rosalega gaman. Eftir
það skildi ég við leikskólakonurnar, en þær flugu heim um kvöldið
Svo var farin túristarúnturinn sem sagt Amalíuborg og Litla
hafmeyjan og svona með Maríu, Reyni og Margréti Emblu. Takk fyrir
okkur
Við flugum svo heim um hádegi á þriðjudaginn alveg útkeyrð eftir
æðislega skemmtilega ferð til Danmerkur. Þetta er alveg rosalega
skemmtileg borg.
Svo á miðvikudaginn tók svo bara hversdagsleikinn við, var ansi
þreytt í vinnunni þann dag
Krakkarnir skemmtu sér konunglega hjá ömmu sinni og afa Held
samt að þau hafi verið ansi spræk við þau þótt að amman og afinn
vilji nú ekki alveg viðurkenna það. Emilía og vinkona hennar náðu
mála eitt herbergi fyrir ömmu sína með keramikmálningu hennar og
svo fylltu þau öll stígvél af vatni og svona ýmislegt sem þau
dunduðu sér við En þetta er víst bara eitthvað sem börn gera og
það væri nú eitthvað skrítið ef börnin högðuðu sér ekki eins börn
vitnað í afann
Það er voða gott að það er komin föstudagur og ég hlakka mikið
til að gera ekki neitt á morgun; Sólberg er farinn til
Bolungarvíkur að hjálpa mömmu sinni og pabba að flytja í nýja húsið
sitt Við ætlum bara vera heima og vera ekkert að flækjast
fyrir
Við vorum í foreldraviðtali í gær hjá Kollu deildarstjóranum
hennar Emilíu og það gekk mjög vel. Hún sagði að hún aðlagaðist
ótrúlega vel og það væri bara alveg eins og hún hafi verið þarna
hjá þeim frá byrjun Hún sagði að hún væri svo góður vinur vina
sinna. Hún passar alltaf upp á að allir fái jafnt og ekkert sé gert
á hlut hinna það var gott að heyra það.
Svo í dag fékk hún stórt umslag í pósti merkt: frk. Emilía Rós
Sólbergsdóttir. Það var frá grunnskóla Grundarfjarðar og verið að
segja henni frá Vorskólanum sem fer að byrja en þá er hún eina viku
í skólanum að æfa sig að vera í skóla svo var talað um næsta
vetur og hver yrði umsjónarkennarinn hennar og svona, ég fékk smá
sjokk þegar ég fattaði að LITLA stelpan mín er orðin stór og er að
fara að byrja í skóla ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.....
En jæja þetta er komið ágætt í bili Hafið það gott um
helgina....
kv. Hafrún
»
13.04.2007 18:12:24 / hafrung
Góðan dag!
Í dag á Bryndís systir afmæli! Til hamingju með daginn
elsku systir, snilld að takast að eiga afmæli á föstudaginn
þrettánda Vonandi er allt í lagi með þig
Annars er alltaf gott þegar maður kemur heim úr vinnunni á
föstudegi, alltaf ljúft að hugsa til tveggja daga letilífs
Sólberg stakk af til Akureyrar svo ég er ein heima með krakkana
yfir helgina.
Það er nefnilega söngvakeppni framhaldsskólanna núna um helgina
og sú sem átti að fara með krökkunum norður um helgina varð veik í
dag og var hann því beðinn um að fara í staðinn soldið
svona á síðustu stundu en hann hefur vonandi gaman af þessu
Þau fóru í rútu af stað í dag, örugglega stuð í rútu fullri af
unglingum
Ég var með saumaklúbb í gær og það var rosa stuð eins og
vanalega var reyndar lítið saumað eða prjónað í þetta skiptið,
okkur tókst eitthvernveginn að detta ofan í ungfrú Reykjavík sem
var á skjáeinum í gærkvöldi Það var reyndar allt í lagi
svosem.
Svo fer Köbenferðin alveg að skella á bara nokkrir dagar til
stefnu. Við leikskólakellingarnar eru að fara að skoða nokkra
leikskóla þar og svona og svo er stíf skemmtidagskrá þegar það er
búið Ég er í ferðanefnd svo það er brjálað að gera í því, búnar
að vera að hittast núna nokkur kvöld í viku síðustu vikurnar, ætlum
svo að reyna að klára alla lausa enda á morgun þannig að þetta er
allt að smella Sólberg ætlar svo að fljúga út tveim dögum á
eftir mér og ég lengdi ferðina mína um tvo daga svo við gætum nú
heimsótt Maríu og Reyni eitthvað. Það verður rosalega gaman.
Krakkarnir verða hjá mömmu og pabba á meðan og eru þau farinn að
hlakka mikið til að vera hjá ömmu sinni og afa í svona marga
daga
En jæja ætla að fara elda eitthvað handa okkur
kveðja Hafrún
»
07.04.2007 11:14:40 / hafrung
Góðan daginn!
Í dag á ég afmæli, verð 26 ára klukkann 16.12 í dag.
Mér finnst alltaf svo gaman að eiga afmæli, finnst eins og ég
eigi þennan dag alein og engin annar, þótt geri mér þó grein fyrir
að líklega eiga eitthverjir aðrir þennan dag líka t.d. hann Russell
Crowe, þá er samt svo gaman að fá að vera bara krakki og njóta þess
að fá pakka og kökur
Finnst samt skrítið að eiga afmæli og ég hitta engan af minni
fjölskyldu, vantar smá knús frá mínu fólki en það er svona að eiga
alltaf afmæli í kringum páskana það vantar nú samt ekki að ég sé
knúsuð hér
Finnst eiginlega að Bryndís eigi að vera hér því það var alltaf
haldið upp á afmælin okkar saman þar sem það er bara vika á milli
okkar Gugga bjó alltaf til eitthverjar fáránlegar kökur, einu
sinni gerði hún alla pýramídana og einu sinni eldfjall, held að
henni hafi nú fundist það gaman og gert það meira af sínum listræna
anda heldur en fyrir okkur jú víst Gugga
Svo fengum við fullt af pökkum Hilmar á Krossnesi gaf mér alltaf
bók, (stendur nefnilega inn í flestum bókunum mínum heima
"afmælisgjöf frá Hilmari 19??) Einu sinni átti ég afmæli á páskadag
og þá gáfu allir mér páskaegg svo var farið út í allskonar leiki
og skemmt sér þangað til mamma kallaði í okkur í kaffi. Eitt
skiptið sökk ég ofan í jörðina í skömm því þá tók pabbi upp á því
að segja svo allir heyrðu " þér verðið að getað étið svo þér getið
skétið" ómæ god hvað ég skammaðist mín fyrir pabba minn þá fyrsta
og eina skiptið líklega var náttúrulega 12 ára eða eitthvað og
þetta mátti sko ekki segja
Eitt árið þegar Bryndís og Gugga voru báðar farnar burtu í skóla
og ég var orðin ein eftir heima með mömmu og pabba og Inda þá kom
brjálað veður daginn sem ég átti afmæli og engin komst í veisluna
mína. Það hefur væntanlega verið á 13 eða 14 ára afmælinu mínu. Ég
var auðvitað pínu svekkt og vorkenndi mér alveg svakalega mikið
engir pakkar og ekki neitt
En þá kom hann Indi minn til mín og gaf mér RISA stóran
brjóstsykurspoka, sem var örugglega 5 kíló eða eitthvað, kyssti mig
og sagðist því miður ekki eiga neitt annað til að gefa mér Mér
fannst þetta nú meira en nóg enda átti ég þennan poka lengi, lengi
og hefur mér alltaf þótt einstaklega vænt um þessa gjöf. Svona var
Indi, fann þegar maður var sár og svekktur og fann leið til að láta
manni líða betur seinna þegar ég var hálfnuð með pokann fann ég
5000 krónur ofan í honum og fór eitthvað að spyrja Inda um hann þá
sagðist hann bara ekki hafa átt neitt smærra í veskinu
EN allavega gleðilega páska og hafið það gott
kv. Hafrún
»
05.04.2007 14:40:44 / hafrung
Jæja ég sem lofaði sjálfri mér að reyna aldrei að blogga, þar
sem ég mjög líklega aldrei eftir að hafa neitt skemmtilegt að
segja
En jæja það má reyna það, þá get ég allaveganna skemmt sjálfri
mér með röflinu í mér
Akkúrat núna er ég í Bolungarvík yfir páskana, það hefur verið
fínt en hef svo sem ekki gert mikið fyrst ég þurfti að taka upp á
því að togna í baki og hálsi og get takmarkað hreyft mig
Ég veit ég er algjör auli og ætla því ekki að ræða það
meir
Mér er ansi oft hugsað heim í sveitina þessa dagana, vildi ég
væri þar. Skrítið að engin sé þar, húsið kalt og tómt og neglt
fyrir glugga. En allar minningarnar þaðan ylja manni og húsið
sjálft verður fljótt að hlýna með vorinu því þá fyllist staðurinn
af lífi og fólki og Munaðarnesið okkar verður ekki eitt lengur.
Munaðarnes fylgir mér alltaf hvert sem ég fer, eins og hjá flestum
með sín æskuheimili, Þegar mig dreymir er ég þar, þótt að í
draumnum sé ég í vinnunni þá er vinnan mín á Munaðarnesi. Ég rugla
fólk oft í ríminu þegar ég er að tala um að fara heim því það
heldur að ég sé að meina þar sem ég bý en að fara heim er alltaf að
fara á Munaðarnes og þannig verður það alltaf.
svo verð ég 26 á hinn daginn! mér fannst ég 16 í gær, tíminn
líður hvort sem maður tekur eftir því eða ekki!
Jæja þetta er komið gott svona í fyrsta skiptið, er ekki einu
sinni viss um að segja neinum frá þessari síðu
kv. Hafrún
»
|
Dagatal
| mars - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | | 28 | 29 | 30 | 31 | | Fyrri | Næsti |
|